Sveimhugi

- í versta falli skárra -

Tuesday, February 25, 2003

Þá er um að gera að hefja dagbókarskrif fyrir umheiminum. Í dag gerði ég ekkert, á morgun mun ég sennilega gera mun minna en ég lofa að segja ykkur öllum frá því nánar þegar það er nú allt afstaðið. Annars er ég að prófa þetta bloggdæmi, nú er enginn maður með mönnum nema að hann bloggi. Það þyrfti náttúrulega að íslenska þessa iðju, að ,,blogga" er svo ostlægt.
Þessar umgjörðir sem boðið er upp á eru náttúrulega til skammar, kannski að ég fari aftur í kerfisfræðina dot kom...
Maður er að prófa sig áfram hérna, hvernig ætli þessi umgjörð komi til með að líta út?
Tillaga að þýðingu á enska orðinu ,,cheesy": Ostlægt

D: Tónlist Ómars Ragnarssonar er oft á tíðum ostlæg !
Skömm
Þvættingur
Húmbúkk
Drasl
Prufa